Bloggsvæðið mitt

Verid velkomin ;)

22.11.2008 11:41:27 / sandrasig

Gleðileg jól elskurnar!!

Jæja nú kemur hið árlega jólakort frá okkur fjölskyldunni í Arnarheiði 33. Við óskum ykkur gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Við vonum að þetta korti hlýji ykkur um hjartarætur á dimmum dögum :)

knús og kram
Sandra og co.

sjá jólakortið hér:

Jólakortið í ár :)



» 3 hafa sagt sína skoðun

13.11.2008 21:00:33 / sandrasig

Crazy crazy að gera!!!

Jæja sælt veri fólkið!!!

Mjög margt gerst síðan síðast og nenni ég ekki að telja það allt upp hér :)
Ég er sem sagt í vettvangsnámi á Heilsuhælinu núna og það er rosa gaman!! ég er alveg að fíla mig rosa vel, skrýtið samt að vera með fólk í líkamsrækt og heilsueflingu og tímarnir eru svo rólegir að ég hef aldrei vitað annað eins. En með þessu opnar maður augun og sér að heilsan er ekki sjálfgefin!! maður þarf að hugsa vel um líkama og sál svo heilsan verði góð frammeftir aldri!! Þeir sem eru góðir heilsu hafa forréttinda að fá að njóta hennar svo það er eins gott að hugsa vel um sig! Án líkamans getur maður víst ekki lifað!!!

Brjálað að gera í skólanum þó maður eigi nú að vera í fríi frá skólanum!!! alltaf sama skipulagið í þessum skóla....verkefni sem eru á deadline þangað til 3. des (minnir að það sé síðasta deadlineið) þá eru 3 stór verkefni í næringarfræði...þá erum við að tala um rosalega vinnu á bak við þau!!! Skýrslu um vettvangsnámið, ársáætlun fyrir ólympíufara, kynningu til að kynna lokaverkefnið, poster og lokaskil á stóra verkefninu í einum áfanga......samtals = 7 stór verkefni á 2 og hálfri viku!!! má bjóða ykkur??? Held að þetta sé án efa erfiðasta törnin í þessum skóla til þessa....ég efast um að lokaverkefnið og lokaspretturinn verði svona strembinn!!!

Mamma hefur það ágætt og er mjög hress og alltaf jafn jákvæð!!! Allar rannsóknir sýna góð viðbrögð og allt á niðurleið :) sem eru rosalega æðislegar fréttir :)  Hún er algjör HETJA hún mamma mín!!!

Engillinn minn hún Birta Marín stendur sig rosalega vel í skólanum og allt frábært þar :) nóg að gera hjá henni. Hún er á fullu í fimleikunum og svo í söngskólanum hjá Maríu Björk!!! hlakka rosalega til að fara á tónleikana hjá heni og hlusta á cd sem við fáum :)

Annars er það voða lítið annað að frétta af mér og mínum. Við ætlum að skella okkur í sumarbústað um helgina og hafa það ógó kósý!!!! ekkert netsamband og MJÖG næs :) hihi enginn tölvupóstur og ekkert vafr á netinu :) mmmm hlakka til !! Því miður fæ ég ekki bara að hafa það kósý í bústaðnum því það er víst Íslandsmótið í fimleikum núna um helgina svo það fer einhver tími í það að vera með stelpunum á mótinu :) mmmmmm ég ætla að koma með.....5 peninga heim :D hihihi það er markmiðið!!! og eina inn á meistaramót!! :)

knús, læt þetta gott heita í bili!!!
Sandra




» 1 hafa sagt sína skoðun

20.10.2008 15:38:30 / sandrasig

Góðan dag :)

Ég sá það eftirá að seinasta færsla var svolítið mikið væl og frekar þunglyndisleg færsla!! þó ekkert hafi breyst þá reynir maður að horfa á björtu hliðina á lífinu :)

Eyddi helginni bara í rólegheitum, fór með prinsessuna í söngtíma á sunnudagsmorgun. Á föstudeginum hittumst við Dóra og Heiða og elduðum saman :) Ásgeir og Davíð voru líka og svo spiluðum við trivial sem náttlega endaði með því að við stelpurnar unnum drengina, reyndar naumlega !! Eftir að hafa klúðrað MJÖG mörgum kökuspurningum.....skiptum oft úr réttu svari yfir í rangt :) en þrátt fyrir það unnum við og vorum yfir allan tíman svo það var aldrei hætta :) Eftir að þau fóru þreytt heim spiluðum við Davý eitt spil......og getiði hvernig úrslitin fóru??? já klárlega ég vann :) ég hefði að sjálfsögðu ekki sagt frá úrslitunum ef ég hefði tapað :) hihihi

Hahahah sem minnir mig á það þegar við Davíð, Sólveig, Jan, Auður og Doddi vorum að spila partý og co þá varð Jan bara hálf hræddur við Auði frænku hahahaha frekar fyndið. Hún varð svo æst!!!! munaði  litlu að hún hefði gengið í skrokk á Dodda sínum :) Já og þegar við Adda; Inga, Auður og Rakel vorum að spila þegar við áttum frænkukvöld, þá varð Adda líka frekar nervus við okkur Auði!!! hahahahahahahah ef það er keppni á annað borð, þá tapa ég EKKI!!!

Allavega :) styttist í þjálfun, ætla að láta stelpurnar púla svolítð. Styttist í mót og svonna.

Jæja segi þetta gott í bili,
Sandra - tapsára og vinningsglaða :)


» 2 hafa sagt sína skoðun

14.10.2008 18:43:46 / sandrasig

var ég búin að segja ykkur....

.......hversu mikið ég HATA snjó í byggð?????????????

Þá endurtek ég það bara hversu mikið ég þoli ekki snjó sem er í byggð!!!! Snjórinn á að vera uppá hálendi og í fjöllunum svo þeir sem vilja njóta hans geta farið þangað í snjóinn!!!!

Úffff þegar það byrjar að snjóa þá bara fríka ég út!!!! ég þoli ekki þegar það kemur snjór því þá kemst ég ekki ferða minna. Sérstaklega þar sem ég á glataðann bíl!!!!!!  Já ég held þið getið hringt á vælubílinn!!!! :)

Frekar mikið að gera í skólanum, svona þannig!!!  verkefni og verkefni og aftur verkefni!!

Stutt í fyrsta prófið, stutt í vettvangsnámið, stutt í verkefnaskil, stutt í fyrsta mótið, stutt í JÓLIN, stutt í útskriftarferð og stutt í útskrift!!!!  eruði að tjékka á því hvað tíminn flýgur áfram???

Þetta með nýja áhugamálið.....ég er frekar forvitin...... ætli það sé það að ég keyri 2x í viku í RVK að æfa dans með henni Önnu minni??' eða er það að ég fer 1x í viku með prinsessuna mína í söngskólann??? eða er það að ég elska að föndra og búa til eitthvað skemmtilegt??  eða að ég keyri 1x í viku til RVK að kenna/læra ungbarnasund??
(úff hvað ég fer oft í viku til rvk, fyrir utan allar laugarvatns ferðirnar. Viljiði giska hvað ég eyði í bensín??????????)

Já þetta eru yndislegir tímar ég segi nei við ****** tali og neita að segja þetta orð né tala um þetta!!!!!! ég þakka bara gvuði fyrir það að ég sé ekki að vinna í fjármálageiranum eða að læra eitthvað sem tengist því!!! ég held bara að ég sé í góðum málum :)

Hugsiði ykkur.....hvar ætli þið verðið stödd í lífinu eftir 2 ár.....eða 5 ár??' við erum að tala um að eftir 5 ár verð ég þrítug!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!! shitturinn titturinn!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

adios
Sandra


» 4 hafa sagt sína skoðun

15.09.2008 19:40:27 / sandrasig

Bílakaup, sólarlönd, reikningar.....

..... skólinn, veikindi og fimleikar eru efst í huga mér núna þessa dagana.

Ég seldi litla sæta bílinn minn í sumar svo við höfum bara verið með Lexusinn síðan þá. Það hefur gengið misvel fyrir okkur að aðlaga okkur að því að vera bara með einn bíl. Þegar maður er svona vanur því að hafa sinn bílinn hvor þá gleymdist stundum að tala saman og skipuleggja hver fær bílinn o.s.frv. :) hihihi Þetta gengur nú vel núna, en mér finnst ég ekki hafa verið að gera neitt nema að sýslast eitthvað með bíla, hvort sem það er að fara með í viðgerð, skoðun eða á bílasölum :) En nú lítur þetta allt út fyrir það að við séum bara að selja Lexusinn líka svo það er bara gott mál. Svo þá fer leitinn af stað og leita að hinum fullkomna bíl fyrir okkur :)

Nú styttist í sólarströndina...ekki nema 2 dagar þangað til við förum. Litla prinsessan okkar fær að koma með svo hún er alveg í skýjunum....svolítið spennuþrungið loftið hér í Arnarheiði :)

Úfffffff af hverju getur maður ekki afþakkað reikninga eins og ruslpóst???? Ég væri rosalega til í það að geta afþakkað alla reikninga og bara hafa það næs!!! Ég held að maður sé nú svolítið að finna fyrir þessari blessuðu kreppu, en ekki kann  maður að spara svo hvernig endar þetta eiginlega???? Maður hefur aldrei þurft að spá neitt í þessu, eytt bara í það sem manni langar til... en nú er það sko aldeilis ekki hægt. Það var gott að þurfa að læra þetta en ég er búin að læra og ég væri nú alveg til í að þessi blessaða kreppa færi að fara heim til sín!! hvað segiði um það???

Skólinn á fullu, samt frekar næs sko. Bara 3 dagar í viku að meðaltali sem ég þarf að keyra uppeftir svo ég er bara nokkuð sátt og get bara ekki kvartað!!! Þetta verður nú samt örugglega svolítið strembið þegar fer að líða á þar sem ég er í alveg tveimur námskeiðum sem eru alveg nokkuð þung. Bara gaman og stanslaust stuð :)

Mamma er bara nokkkuð brött, ber sig náttlega alltaf rosalega vel svo það er frábært!! Hún er á selfossi núna svo það er stutt fyrir okkur að kíkja á hana. Allt lítur út fyrir það að hún fái að koma bráðum heim svo það verður ÆÐI :)
Fór með heimasætuna til læknis í dag því hún er búin að hósta og hósta síðustu 3 vikurnar. Þar fórum við út með asmapúst og hún komin með eitthvað oní sig svo það eru bara púst og púst og púst næstu 2 vikurnar !!!!

Fimleikarnir eru alveg að verða komnir á fullt skrið. Eftir ca eina viku verður þetta orðið rosa fínt og allt orðið eins og það á að vera í vetur :) Markmiðið mitt ekki alveg komið en ég er ennþá að vinna í því ;) ég gefst ekki upp :) hihihi

Jæja þá segi ég þetta gott í bili.
2 dagar í sólina og svo blogga ég meira þegar ég kem heim
Hafiði það rosa gott og ég hugsa til ykkar þegar ég ligg á ströndinni að lesa cosmo og með kokteil í hinni :)

knús knús
-Sandra


» 3 hafa sagt sína skoðun

10.09.2008 22:47:41 / sandrasig

Þrjú komma níu fita !!!!

hahah hún dóttir mín er náttlega bara snillingur út í gegn :) Hér kemur ein voða skemmtileg saga um hana:
Við mæðgur vorum einn morgun saman að fá okkur morgunmat, ég spyr hana hvort hún vilji Fjörmjólk eða nýmjólk út á morgunkornið sitt þar sem léttmjólkin var uppseld í búðinni.
Hún biður nú fyrst um útskýringu á því hvað Fjörmjólk sé eiginlega og ég útskýri það að það sé svona mjög svipað og undanrenna. Þegar ég er búin að útskýra það spyr ég hana aftur hvort hún vilji Nýmjólk eða Fjörmjólk á kornflexið og þá segir hún án þess að hika:

,,Ojjj ekki Nýmjólk mamma, það er þrjú komma níu fita í því!!!!!!"

hahahah ég vissi ekki hvert ég ætlaði ég hló svo mikið en skildi ekki hvar hún hefði fengið þessar upplýsingar þar sem nýmjólk er ekki keypt á þessu heimili. Hún sagði um hæl að hún hefði séð það á mjólkurfernu  hjá ömmu sinni og bað mig vinsamlegast að gefa sér Fjörmjólk :) :)

hahah mér fannst þetta frekar fyndið og er búin að segja mörgum þessa sögu, en þó ekki henni til mikillar gleði.

Læt þetta duga í bili.
-Sandra


» 1 hafa sagt sína skoðun

03.09.2008 00:35:56 / sandrasig

Sandra fyrirsæta :) hihi

Fannst ég bara vera að blogga í gær en það eru alveg næstum 5  dagar síðan!!!! rosalegt hvernig tíminn flýgur frá manni.

Fótboltinn á fullu, eða þar að segja nefndarstarfið í kringum fótboltann. Endalausir fundir og skipulag, græja og gera!!! Fer að styttast í óvissuferðina miklu, skipulagið alveg að komast á hreint. Blaðaútgáfan líka komin á fullt, hlakka rosalega til að sjá útkomuna á því. Myndataka í stúdíói á morgun......það er nú alveg pínu stress fyrir það..... Alltaf gaman að eiga flottar myndir af sér ;) og ekki sakar þegar atvinnuljósmyndarar eru að mynda mann:) fyndið samt að þetta er alveg 3ja myndatakan sem ég fer í núna í sumar :) hihi mín bara orðin fyrirsæta :) Hér kemur smá sýnishorn !!
Halldóra Rut

Við dóra hressar <img src=" src="/AlbumImage.ashx?id=1294535" />



Fimleikarnir alveg að fara á fullt. Ég er að koma nýjum þjálfurum inní starfið, skipuleggja starfið í vetur og skipuleggja mig :) Nóg þar að gera, en það verður æði þegar ég get sleppt litla barninu mínu (deildini) í aðrar hendur :) hihihi ég er ótrúleg! Sara á án efa eftir að standa sig rosalega vel.

Skólinn kominn á fullt og maður fékk eiginlega bara smá kjaftshögg strax á fyrsta degi. Strax að undirbúa vettvangsnám og lokaritgerð....úfff það verður erfitt að fá heilann til að byrja að starfa aftur ....En hey já by the way ég fékk 8,0 í aðferðafræði, prófinu sem ég tók núna í ágúst :) jibbý frekar sátt bara með það !!!

jæja segi þetta gott í bili
-Sandra

» 3 hafa sagt sína skoðun

27.08.2008 12:18:56 / sandrasig

Á sama tíma að ári......

....ein færsla síðan 4. sept 2007 (næstum ár síðan) fyndið hvað maður er að gera nákvmælega sömu hlutina á svipuðum tíma ársins. Ég hefði alveg getað verið að skrifa þessa færslu núna :) haha hversu fyndið er það :)
Hérna kemur það:

4. sept 2007

vá....núna þyrfti ég alveg svona 5 auka klukkustundir inní sólahringinn minn!!!!! allt alveg kreisí að gera núna....

 ....fimleikarnir að fara af stað og ég þyrfti helst að eyða öllum mínum sólarhringum í að skipuleggja það !!! Setti í gríni upp Old-mama hóp í fimleikunum eins og í fyrra, en það var ekki nógu góð þátttaka í fyrra(aðeins 3) svo það var flautað af!! Núna er hópurinn komin uppí 15 eða 16 og ég er að skíta í buxurnar....frekar stressuð yfir þessu því ég er náttlega bara sjálf að þjálfa þann hóp :) og fyrir utann 1 í viðbót.....svo ég þyrfti...já alveg nokkra auka klst. :)

....skólinn byrjaður og hann hefst alveg með pompi og prakt!! þyrfti strax að fara að lesa. Enn sem komið er, er engin bók á íslensku sem er á bókalistanum!! hversu hræðilegt er það?? Æj svo kemur þetta í vana að lesa bara norsku og ensku til skiptist :)

 ....Barcelonafýlingur alveg kominn í mig. Fer að styttast í ferðina okkur góðu og ég er búin að bóka flug og hótel fyrir okkur allar 9. Svo það þarf alveg líka að eyða fullt af klukkustundum í að skipuleggja ferðina svo allir verði sáttir og glaðir :) Þar sem aldursbilið er svona breytt verður að reyna að höfða til allra :) Frá 13. ára til 72. ára það er alveg svona frekar breiður hópur. Ég er búin að grafa upp alveg heilann helling af dóti sem er hægt að skoða og gera svo það er bara spurning hversu vel við nýtum þessa 4 daga sem við höfum :)

 .....elsku yndislega dóttir mín bara orðin 6. ára gömul og er byrjuð í skóla, 1-Ö hahahaha mér finnst ekki svo langt síðan ég var í 7-Ö hahahahahahah en það eru samt alveg 11 ár síðan :s

 

jæja talvan mín alveg svínvirkar núna og ég gæti bara ekki verið ánægðari :D:D:D:D  alveg í skýjunum!!

 

Segi þetta gott í bili og með þessu áframhaldi þá gæti bara vel verið að ég verði dugleg að blogga reglulega :)

 Adios,
Sandra

Smá punktar eða úrdráttur:
Fimleikarnir að fara af stað eins og í þessari færslu :)
Skólinn reyndar ekki byrjaður svo ég er frekar chilluð á þessu núna :)
Talvan og netið nýbúið í viðgerð svo ég er í skýjunum :)
Alveg að fara að styttast í Costa del sol ferðina okkar (barcelona fyrir ári) :)
Yndislega dóttir mín bara búin að stækka um heilt ár og er að fara í 2-Ö :)

-Sandra


» 4 hafa sagt sína skoðun

26.08.2008 15:24:06 / sandrasig

skipulag á óskipulaginu :)

Úfff púffff búin að eyða of mörgum klukkutímum í að skipuleggja óskipulagið í þvottahúsinu hjá mér!!! Þetta er magnað hvað það er mikill pappír og dót og drasl sem fylgir manni!!! Það eru örugglega svona 2 tonn af pappír bara frá því að ég byrjaði í skólanum og svo annað eins fyrir fimleikana. Magnað alveg hreint.

Birta Marín rosalega ánægð með að vera byrjuð í skólanum. Ég má alls ekki sækja hann fyrr en kl.16:00 í skólaselið svo ég er bara að hanga og bíða eftir að fara að sækja hana.... Það er alltaf svo gaman þegar maður er að byrja í skólanum og svona :) Ótrúlegt að maður eigi barn sem er að byrja í 2. bekk.....úff hvað maður er nú gamall!!!

Fer að styttast í sólina hjá mér...aðeins nokkrar vikur í að við Davíð förum í sólina :) ohhh það verður frekar næs að liggja á sundlaugarbakkanum með kokteil í hönd og lesa slúðurblöðin :) gerist það eitthvað betra eða hvað?? 

Jæja vika í að skólinn byrji og það er eins gott að nýta tímann í að gera það sem þarf að gera áður en maður sest aftur á skólabekk!!! síðasta árið og þá er maður bara útskrifaður....úfff skrýtin tilhugsun, finnst ég hafa verið að byrja síðasta haust og nú fer þetta bara að taka enda....

-Sandra

» 2 hafa sagt sína skoðun

24.08.2008 16:38:56 / sandrasig

Ég er........

.............komin aftur
.............hress og kát
.............glöð í bragði
.............spennt
.............ánægð
.............nokkuð sátt með lífið :)

Já ég ætla bara að byrja á því að bjóða sjálfanmig velkomna aftur í blogg heiminn :) hihi. Eftir æðislegt og rosalegt sumar. Líf mitt hefur breyst ansi mikið á stuttum tíma. Ótrúlegt hvað lífið getur tekið algjör U beygju á stuttum tíma. Lífið er áskorun og það sem drepur mann ekki, herðir mann!!! Það getur verið ósanngjarnt en maður verður bara að bíta í  það súra epli og taka því sem maður þarf að takast á við!!

Skólinn fer að byrja, mér gekk bara ágætlega í prófunum í vor :) var bara nokkuð sátt með önnina því ekki var hún neitt voða skemmtileg, erfið og leiðinleg!!! Ég er búin að klára vonandi 124 einingar (á eftir að fá útúr 10 ein) og þá eru aðeins 56 eftir :) Ég var reyndar búin að skrá mig í heilan helling af námskeiðum......en ég býst við því að draga það val eitthvað til baka. Er ekki alveg að sjá að ég geti tekið 38 einingar á haustönn og 40 einingar á vorönn með bæði fimleikunum, fjölskyldunni og ungbarnasundinu :) ætli ég minki þetta ekki um 8 einingar samtals...en það kemur í ljós :)

En mamma mín gefur mér von um að allt sé hægt, hún er mín hetja!!! með hennar hugafar er maður fær í flestann sjó og lætur sko ekkert stoppa sig!! Hún á sko hrós skilið og meira en það!!! Elska þig mamma mín.

Skólinn byrjar í næstu viku og ég hef þá alla næstu viku til að undirbúa mig fyrir það, það verður rosa viðbrigði að þurfa að vakna snemma alla morgna... pffff ég á nú eftir að sjá það gerast ;) hihi

Sumarið var eins og ég sagði rosa viðburðamikið. Námskeiðið hjá okkur Dóru gekk bara eins og í sögu og við rosa duglega að troða okkur í sviðsljósið ;) hihi
Vorum í sunnlenska, dagskránni, séð og heyrt og í kastljósinu hahahah ótrúlega athyglissjúkar :)
Með þessu námskeiði þá held ég að ég sé bara komin svolítið áleiðis með bs ritgerðina mína...þar að segja ef ég fæ það samþykkt :)

Jæja ég segi þetta góða byrjun á blogginu, ég vona að ég haldi því við í vetur :)

Áfram Ísland!!!
-Sandra



» 4 hafa sagt sína skoðun

23.06.2008 22:06:40 / sandrasig

Úfff ég segi bara....

.....hafiði það gott í sumar!!!

Ég ætla að taka mér sumarfrí frá þessari bloggsíðu um nokkurn tíma :)

þið getið fylgst með á www.blog.central.is/fotboltakonur
eða www.blog.central.is/hamar-t1

:)

Ég minni ykkur svo bara á að spurja mig um ráðleggingar ef þið ætlið að tippa :) hihihi og svo eru bara 18 dagar þangað til ég fer til France :)

gúllí gúllí :)
Sandra


» 7 hafa sagt sína skoðun

18.06.2008 23:09:37 / sandrasig

Já sæll.....

.............

úff það er svo langt síðan ég bloggaði síðast að ég held að þetta verði bara svona bloggfærsla í punktum :)

-Prinsessan mín orðin 7 ára....nei þetta er ekki djók. 7 ÁRA!!!!!
-Fór í hestaferð, eftirminnanlegt, ógleymanlegt :) mjög gaman !!
-Námskeiðið byrjar vel :)
-Brjálað stuð hjá FC Grýlum
-Fimleikarnir á fullu og undirbúningur fyrir Eurogym.
-Aðeins 3 vikur í brottför :)
-Langar í verslunarferð í haust, hver vill memm????
-Sól sól og aftur sól.....sumarið byrjar vel og ég er vongóð með að sólin ætli að staldra aðeins við hjá okkur í sumar!!
-Langar samt sem áður rosalega að fara í sól þar sem er ekki rok og kalt...langar í logn hita og kokteila á sundlaugabakkanum.....hljómar vel ekki satt??

Jæja ætla að segja þetta gott í bili. Ætla að tileinka systur minni þeirri elstu þessa færslu þar sem hún á afmæli eftir nákvæmlega 50 mín :D:D:D knús knús til þín og ykkar!!!!! langar að vera með ykkur núna......langar rosalega mikið í eitt gott systradjamm :) Hvernig gengur með skipulagningu á systraferðinni???

Jæja segi þetta gott í bili,
Sandra


» 0 hafa sagt sína skoðun

02.06.2008 17:55:05 / sandrasig

Myndir af húsinu mínu í rúst!




ég veit ekki af hverju myndirnar eru svona litlar.......en hérna eru þær nú samt! þarf eitthvað aðeins að fikta í þessu til að láta þetta virka :)

en læt þetta duga í bili!!
Sandra jarðskjálfti

» 4 hafa sagt sína skoðun

20.05.2008 16:59:13 / sandrasig

Mikið mikið mikið að gera :)

Úfffff maður, jæja þá er prófatörnin búin í bili!!!
Þetta gekk svona allt í lagi, seinasta prófið var heldur strembið.....en ég vona þó að það hafi náðst!!! en ef svo ekki, þá gerist ekkert hræðilegt..ég tek það þá bara aftur upp í ágúst!!! En góðu fréttirnar voru þær að ég fékk útúr hinum 2 prófum strax eftir heilsufræði prófið. Þetta voru sem sagt ekki loka lokapróf úr áfanganum en samt sem gildi til einkunna...og ég fékk 9,5 og 9,3 :) rosa ánægð !!!! Og þetta bjargaði alveg hreint deginum f yrir mér.

Eftir prófið brunaði ég heim og sýslaðist aðeins hérna heima og fór í búðina og sonna. Svo komu Anna og Sara og sóttu mig og við fórum á Kajak....það var rosa gaman á kajak, en ekkert svona sem maður gerir aftur!!! varð hálf sjóhrædd eitthvað og hahaha ég er svo mikill ketlingur :) hihi

Humarsúpan var ÆÐI og ég fór sko rúllandi södd þar út, fórum svo í húsið hennar Eddu Ömmu (ömmu hennar Hildar)....ég var orðin svo dauðuppgefin að við fórum bara snemma heim.

Föstudagurinn byrjaði snemma því ég var komin í bæinn um hádegi, sýslaðist þar aðeins með Dóru, Jóhönnu og Bjarndísi fyrir grímuballið. Fór svo heim og svo eiginlega aftur beint í bæinn :) skellti mér á pál óskar á Nasa....þvílík og önnur eins snilld :) rosa gaman!!
Eftir lítinn sem engan svefn var vorhátíð og æfing í fimleikunum og beint eftir það undirbúningur fyrir grímuballið sem var náttlega bara algjört ÆÐI!!! vel heppnað í alla staði, get ekki beðið eftir að sjá myndir!! Nótinn endaði svo á balli í Hvítahúsinu á selfossi með Skítamóral sem var líka algjör snilld, við Heiða dönsuðum af okkur rassinn :) hihi

Eftir 4klst svefn var stefnan tekin á fimleikamót, fór með stelpurnar mínar að keppa sem var bara rosa gaman :) þær stóðu sig rosalega vel og allt var barar rosa fínt í alla staði! Þegar ég kom heim fór ég að reikna saman og reiknaði það út að ég hafði aðeins sofið í 8,5klst síðan ég vaknaði á föstudagsmorgninum!!!! OMG þegar ég fattaði það varð ég ennþá þreyttari og fór að sofa kl.18:00 og vaknaði eiginlega ekkert fyrr en kl. 13:00 daginn eftir :)

Undirbúningur fyrir sumarið gengur bara nokkuð vel :) við Dóra þrömmuðum Selfoss í dag og vorum að reyna að sníkja út monnínga.. sem gekk bara jú ágætlega svona þegar það leið á daginn. Morgundagurinn verður svipaður þar sem við höldum ótrauðar áfram í þessari vinnu !!

Jæja ég ætla að segja þetta gott í bili, fótboltaæfing í kvöld, gönguhópur á morgun og fótbolti á fimmtudag....og sannarlega eintóm hamingja (fyrir utan það að ég missi af fimleikaæfingu:()

Sandra

» 6 hafa sagt sína skoðun

14.05.2008 14:26:37 / sandrasig

Grímuball, kajak, humarsúpa, páll óskar......

.....gerist ekki betra :)

Úfff þetta hlýtur að vera grín, ég finn mér allt annað að gera heldur en að vera að læra.... Seinasta prófið á morgun og ég er algjörlega að fara yfirum og fyrir utan það held ég að ég sé að missa geðheilsuna!!!! úfff maður.....af og til þarf ég að stökkva upp af stólnum, fara frá tölvunni og hoppa svolítið....hef ekki einbeitingu til að sitja og lesa...ég er búin að vera að lesa í næstum 3 vikur straight!!!!!! og það er eitthvað sem ég hef ekki gert langa langa langa lengi!!!
Allir búnir í prófum nema við og GEÐVEIKT veður úti....úff panti ekki lesa yfir þessa færslu aftur, væll.is!!!!  hahhahahaha

Allavegana burtséð frá því hvað ég vorkenni sjálfri mér mikið....þá er dagskráni framundan GEÐVEIK!!!!!!!!!!!!

FImmtudagur:
Próf til kl.13:00
Reykjavík stússast
Stokkseyri Kajakferð með frábæru fólki
Stokkseyri Humarsúpa að hætti fjöruborðsins
Stokkseyri Partý...veit nú ekki hvað ég endist þar lengi :S

Föstudagur:
Klipping kl.10:00
Reykjavík að stússast :):)
Reykjavík brúnkusprautun - við erum að tala um að ég verð brún eins og svört kona.
Reykjavík Páll Óskar á NASA !!!!!!!!!!!!!!!

Laugardagur:
kl.05:00 setja pípuhreinsir í hárið, lambakrulllllur!!
Hveragerði kl.10:00 æfing
hveragerði kl.12:00 vorhátíð og grillveisla
Eftir það fyrirpartý hjá mér, æfa atriðið, dans og söngur :)
GRÍMUBALL aldarinnar, þemað The red carpet - Við ætlum að vera Spice Girls og ég verð Mel B - scary spice:):) hahahah þess vegna þarf ég að vera brún eins og svört kona :)

Sunnudagru:
Mosó Fimleikamót kl.12:00

mánudagur þriðjudagur miðvikudagur - sofa hahahah

Jæja nú ætla ég að segja þetta gott í bili, og halda áfram að lesa um: offitu, sykursýki, geðraskanir, blóðþrýsting, ónæmiskerfið, krabbamein, beinþynningu og heilsu og faraldursfræði!!! hljómar spennandi ekki satt????

adios
Sandra - Scary Spice :)

» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 18
Heimsóknir
Í dag:  22  Alls: 45225
Dagurinn í dag
9. febrúar 2012
Tíminn flýgur
Niðurtalning
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1239 dögum
Costa del sol BABY :)
Könnun
Á að kíkja útfyrir landssteinana í vetur?